
Flir M232 hitamyndavél
Need advice about this product?
Send us an inquiry and we will help you assess whether this solution fits your vessel, boat or system.
Description
Flir M232 hitamyndavélin er ein minnsta og ódýrasta hitamyndavélin frá Flir. Hún er mótorstýrð og hægt að snúa henni í 360°og halla henni í hvaða gráðu sem er. Hún er mjög einföld í uppsetningu og þarf einungis einn kapal úr brú og upp í myndavélina Upplausnin er 320*240 punktar sem gefur skýra mynd af bátum, siglingamerkjum og hindrunum á siglingaleið hvort sem er í svarta myrkri eða á móti blindandi sól. Sé hún tengd inn á Raymarine fjölnotaplotter, nýtir hann hina einstöku Clear cruise tækni til að greina sjálfvirkt hluti í umhverfinu og sýna á skýran hátt hvar þeir eru. Smelltu hér til að sjá hvernig Flir myndavélin breytir dimmri nótt í nánast dagsbirtu Öruggari leiðsaga í myrkri Betri yfirsýn Auðvelt að setja á hvaða bát sem er Flir M232 hitamyndavélin stóreykur öryggi við leiðsögu í myrkri með því að sýna greinilega hluti eins og bryggjur, garða, sker, baujur auk annarra skipa og báta. Það er einnig staðreynd að hitamyndavélar hafa bjargað mannlífum með því að finna fólk sem fallið hefur útbyrðis á miklu styttri tíma en hægt hefði verið með leitarljósum. M232 myndavélin hefur 320×240 punkta upplausn, 360° snúning auk 4X stafræns aðdráttar. Þetta tryggir fullkomna yfirsýn yfir allt umhverfi bátsins og gerið kleift að stækka upp hluti sem þarfnast nánari skoðunar. Flir M232 myndavélin er létt og fyrirferðarlítil og því einfalt að koma fyrir-, jafnvel á minnstu bátum. Hún tengist með einum netkapli sem straumfæðir hana auk þess að stjórna hreyfingu hennar og senda frá henni myndina seg stafrænan gagna straum. Myndina er síðan hægt að taka ýmist inn á tölvukerfir eða Raymarine fjölnota plotterskjái. Sjá nánari upplýsingar um Flir M232 hitamyndavélina á vefsíðu framleiðenda – hér Almennt Snúningur/ Halli Snúningur 360°, halli +110°, -90 Stærð 161.1 °mm (Ummál) x 229.3 mm (hæð) Þyngd 3 Kg. Stafrænn aðdréttur 4X Upplausn 320×240 punktar Aflnotkun 12-24VDC, Max 18W Umhverfi Rafsegultruflanir (staðall) IEC 60945 Vatnsþéttni IPX6 Loftraki 95% Seltuþol IEC 60945 Vindur 161 Kmh. Vinnuhitasvið (-25°C to +55°C) Geymsluhitasvið (-30°C to +70°C) Myndeiginleikar Myndskynjari 320 × 240 VOx Microbolometer Langdrægi – Manneskja í sjó 457 m. Langdrægi – Lítill bátur 1,3 Km. Sjónsvið 24° × 18° Mynd snið (Format) H264 IP Video stream Mynduppfærsluhraði 9Hz
Related products

Flir M300 myndavéla línan
Flir M300 myndavélalínan setur ný viðmið í myndavélatækni fyrir skip og eykur öryggi í siglingum svo um…

Flir AX8 vélarrúms eftirlitsmyndavél
Alger nýjung í vélarrúmseftirliti sem getur mælt hita á stökum punktum og svæðum. Lætur vita ef hiti fer upp…
