
Olex siglingatölva
Need advice about this product?
Send us an inquiry and we will help you assess whether this solution fits your vessel, boat or system.
Description
Olex 3D Siglingatölvan er gríðarlega öflugt verkfæri til botnskráningar, siglinga og fiskveiða Hún sameinar nákvæm kort, mjög ýtarlegar botnupplýsingar og veiðigögn notanda á einum stað og gefur þannig ómetanlega yfirsýn yfir aðstæður og einfaldar alla ákvarðanatöku við fiskveiða. Olex skrásetur hafsbotnskort með rauntímagögnum frá dýptarmæli og GPS. Skráning dýpisupplýsinga er samfelld og að fullu sjálfvirk. Það eru engin takmörk fyrir magni dýpisgagna og með stöðugri söfnun dýpismælinga verðar botnupplýsingarnar stöðugt nákvæmari. Olex hefur marga möguleika á sjónrænni framsetningu botnmynda, hvort heldur sem er í tvívídd eða þrívídd. Með Olex er aldrei nokkur vafi á hvernig hafsbotninn lítur út. Olex er öflugt gagnasöfnunarkerfi til að halda utan um fiskveiðigögn svo sem merki, ferla svæði og fleira. Auðvelt er að flokka gögn og halda þeim skipulögðum þannig að auðvelt sé að finna upplýsingar þegar á þarf að halda. Olex tengir kortagögn, hafsbotnsgögn, notandagögn, og upplýsingar frá AIS og ratsjá saman á einum stað á skýran og auðsiljanlegan hátt. Þetta gerir siglingu skipa og báta bæði auðveldari og öruggari auk þess að stuðla að hagkvæmari veiðum.
Related products

Koden KM-1100 plotter
Koden KM-1100 plotterinn er fullkominn plotter en þó fyrirferðalítill og afar einfaldur í notkun þökk sé…

Navionics rafræn sjókort
Navionics kortin eru með skýrri og greinilegri framsetningu upplýsinga og með góðum dýpisupplýsingum Þau eru…

Seiwa Explorer 23 black box plotter með WiFi tengingu
Seiwa Explorer 23 WiFi er uppfærsla á hinum vinsæla Explorer 3 sem er í fjölda báta við Íslandsstrendur. Hann…

Seiwa SWx 900w plotter
Seiwa SWx 900 plotterinn er fullkominn plotter en þó fyrirferðalítill og afar einfaldur í notkun þökk sé…
