
Raymarine Axiom fjölnotaplotter
Need advice about this product?
Send us an inquiry and we will help you assess whether this solution fits your vessel, boat or system.
Description
Mjög öflugt fjölnotatæki, fáanlegt með innbyggðum dýptarmæli sem sýnir þrívíddarmynd af botni auk fisklóðninga. Axiom tækið er með hraðvirkum fjögurra kjarna örgjörva, snertiskjá og mjög einföldu og aðgengilegu stýrikerfi með íslensku notendaviðmóti. Það getur unnið sem þungamiðja í fullkomnu stjórnkerfi báta og hægt að tengja við það fjöldan allan af tækjum sem stjórnað er miðlægt frá því, svo sem radar, sjálfstýringu, AIS tæki, myndavélar, vélbúnað bátsins og hljóðkerfi hans svo eitthvað sé nefnt. Axiom tækið hefur bæði WiFi og bluetooth tengingu og getur því tengst öllum nýrri snjalltækjum sem býður upp á nær endalausa möguleika. Hægt er að keyra fjölda smáforrita (APP) á Axiom línunni svo sem Spotify, Netflix ofl. sem eykur enn á notagildi þessara tækja. Vinnuspenna Axiom er 12 volt og það tengist öðrum tækjum í bátnum með NMEA 2000 netkerfistengingu. Axiom tækið er fáanlegt í þremur stærðum 7”, 9” og 12” skjástærð. Tækið er bæði hægt að festa ofan á borð eða fella inn í mælaborð. Sjá nánari upplýsingar um Raymarine Axiom fjölnotaplotter á vefsíðu framleiðenda – hér
Related products

Raymarine Axiom 2 Pro fjölnotaplotter
Mjög öflugt fjölnotatæki, fáanlegt með innbyggðum dýptarmæli sem sýnir þrívíddarmynd af botni auk…

Koden CVS-1410B Breiðbands dýptarmælir
Öflugur 2 tíðna 2 Kw. dýptarmælir með 10,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur breiðbandsmælir fyrir…

Koden CVS-128B Breiðbands dýptarmælir
Nettur 2 tíðna 2 Kw. dýptarmælir með 8,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur breiðbandsmælir sem auðvelt…

Koden CVS-1410/CVS-1410HS Dýptarmælir
2 tíðna 1 Kw. dýptarmælir með 10,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur mælir sem fáanlegur er í tveim…
