
Raymarine Evolution sjálfstýringar
Need advice about this product?
Send us an inquiry and we will help you assess whether this solution fits your vessel, boat or system.
Documents & brochures
Description
Sjálfstýringar fyrir minni báta sem hafa frábæra stýringareiginleika á hagstæðu verði Raymarine Evolution eru vandaðar sjálfstýringar sem henta vel til notkunar í handfærabáta og aðra notkun þar sem ekki er krafist fullkomins útistýris. Stýriseiginleikarnir eru mjög góðir, jafnvel án GPS kompáss þar sem hún hefur innbyggðan rafeindagírónema í stjórntölvuna. Einnig vinnur hún mjög vel með Raymarine C og E línu tækjunum og siglir leiðir og í staka punkta sem hægt er að stjórna beint frá þeim tækjum. Stýringarnar eru í grunninn settar saman úr 4 einingum. Stjórntölvu/ kompás Stjórnborði Mótordrifeiningu Stýrisdælu Þessar einingar eru mismunandi eftir stærð og eiginleikum báta og þarf að velja saman eftir bát og fyrirhugaðri notkun Raymarine býður upp á fjölbreytt úrval eininga sem hægt er byggja upp kerfi úr sem henta öllum bátum og stýrisbúnaði. Einnig er oft hægt að fá samsett kerfi með dælu og öllu sem þarf fyrir mjög hagstætt verð. EV-200 tengingar
Related products

Comnav TS4, Follow up fjarstýring fyrir P4
Handhæg og þægileg fjarstýring sem vinnur sem Follow Up stýri (FFU) og getur einnig stjórnað helstu aðgerðum…

Comnav NF4 – Non Follow up fjarstýring fyrir P4
Handhæg og þægileg fjarstýring sem vinnur sem hefðbundið rafmagnsstýri (NFU) og getur einnig stjórnað helstu…

Comnav-Bógskrúfutengieining fyrir Sjálfstýringar
Tengieining fyrir bógskrúfur. Tengist öllum helstu gerðum bógskrúfa, hvort heldur sem er með föstum hraða eða…

Comnav TS-202 útistýri fyrir 1101-1201
Vatnsþétt útistýri sem hægt er að stjórna öllum meginaðgerðum sjálfstýringarinnar með.
