Skip to content
+354 512 8500
Tækjapakki Einar Guðnason ÍS
Ýmsir birgjar· Equipment packages

Tækjapakki Einar Guðnason ÍS

Need advice about this product?

Send us an inquiry and we will help you assess whether this solution fits your vessel, boat or system.

Description

Báturinn Einar Guðnason ÍS, er nýsmíði frá Trefjum sem afhentur var í Desember 2020. Við sáum um val á tækjum og hönnun tækjauppsetningar, og allan frágang þeirra í samráði við skipstjóra og útgerð. Báturinn er vel búinn tækjum bæði til siglinga og fiskileitar og er fyrsti báturinn í króka aflamarkskerfinu þar sem sett er upp skjáveggskerfi með sama hætti og tíðkast í stærri skipum flotans. Með því er hægt að stilla upp myndum frá öllum tækjum brúarinnar á tvo 43 tommu skjái í beinni sjónlínu skipstjórans. Það er hægt að velja hversu stóran hluta skjánna hver mynd tekur og ef eitthvert tæki krefst fullrar athygli skipstjórans er hægt að setja hana í fullri stærð á allar 43 tommurnar. Einn af kostum þessa kerfis er að hægt er að stilla skjábirtu allra skjáanna sem tengdir eru við það samtímis ef notaðir eru samhæfanlegir skjáir. Skjáirnir sem við notum í kerfið koma allir frá AG Neovo og eru með hert gleri framan á skjáfletinum sem minnkar hættu á að þeir brotni og auðveldar þrif til mikilla muna. Við hjá Sónar óskum áhöfn og útgerð til hamingju með þennan glæsilega bát og hlökkum til samstarfsins sem er framundan. Flokkur Tæki Gerð Lýsing Siglingatæki Ratsjá Raymarine Quantum 2 við Axiom Pro Magntrónulaus CHIRP radar með Doppler tækni Siglingatölva Olex 3D Siglingatölva með þrívíddargrunni Siglingatölva Maxsea Professional Siglingatölva með þrívídd Sjálfstýring Comnav P4 Fullkomin sjálfstýring með hliðarskrúfustjórnun og fullkomnu útistýri Hliðarskrúfustýring Comnav CT-7 Hliðarskrúfustjórnbox fyrir 2 hliðarskrúfur GPS kompás JRC JLR-21 Þriggja loftneta GPS kompás með miklum tengimöguleikum GPS JRC JLR-7600 Vandað GPS tæki fyrir atvinnumenn Plotter Axiom Pro 12″ Fjölnotaplotter með ratsjártengingu AIS tæki Em-Trak A200 Class A AIS Class A AIS tæki með litaskjá Vindhraðamælir Gill Windsonic Einfaldur og öruggur vindhraðamælir sem getur tengst tölvum Fiskileitartæki Dýptarmælir JRC JFC-180 4 tíðna dýptarmælir 3 Kw Dýptarmælir Simrad ES-80 Dýptarmælir, 28 Khz með stærðargreiningu Straummælir JRC JLN-652 4 geisla straummælir með fjölbreyttri framsetningu upplýsinga Fjarskipta og öryggisbúnaður VHF talstöðvar Sailor 6215 2 stykki Vandaðar Class D DSC talstöðvar Inmarsat C Sailor 6150 Mini C Mini-C með neyðarhnapp, nýtist sem tilkynningaskylda utan AIS svæðis Sími Huawei Sími/ Router Gagnatenging Teltonica Router Brúarvakt Alpha BNWAS Brúarvakt með hreyfiskynjara sem minnkar líkur á að skipstjóri sofni á vakt Kallkerfi Raymarine RAY 430 4. rása kallkerfi Myndavélakerfi Hitamyndavél Flir M232 Stýranleg myndavé fyrir nætusjón Myndavélar Raymarine CAM 220 Vatnsþéttar Full HD IP myndavélar Vélarrúmsmyndavél Raymarine AX-8 Myndavél fyrir vélarrúm, með innrauðri vöktun á hitabreytingum Eftirlitsmyndavélakerfi IP Pro. PC hugbúnaður Skjáuppsetning Skjástýring Pacific MS-3 Skjáveggsstýring fyrir 20 innganga og 16 útganga. Aðalskjáir í brú AG Neovo QX-43 Mög sterkbyggðir og bjartir 43″ skjáir með glerhlíf Aukaskjáir í brú AG Neovo RX-22G Mög sterkbyggðir og bjartir 22″ skjáir með glerhlíf Skjár fyrir dekk Dell 43″ Quad 4K Skjár innan við glugga út á dekk. Annar búnaður Útvarp Alpine Sjónvarp Samsung Höfuðtólakerfi Sónar 2. rása. Tveggja rása útvarpskerfi f. höfuðtól með kallkerfistengingu Loftnet Scan Antenna Öll loftnet eru frá Scan Antenna NMEA tengibúnaður Actisense Allur NMEA tengibúnaður kemur frá Actisense