Fara í efni
+354 512 8500
Jotron TronTracker
Jotron· AIS Baujur

Jotron TronTracker

Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?

Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.

Lýsing

TronTracker – Nákvæmt bauju­eftirlit fyrir nútíma sjávarútveg TronTracker er samþykkt baujuvöktunarkerfi hannað til að fylgjast með veiðarfærum af nákvæmni og öryggi. Kerfið er fullkomlega í samræmi við CEPT-reglur samkvæmt ECC/DEC/(02)01 og starfar sem AMRD-B tæki á 160.900 MHz , sem tryggir áreiðanlega staðsetningu án truflana á siglingakerfi. Ný kynslóð veiðarfæra­merkinga TronTracker er kjörinn búnaður til að fylgjast með baujum fyrir net, línu, snurvoð. Kerfið er samþykkt sem löglegur valkostur í stað AIS bauja og hentar sérstaklega vel fyrir tímabundins eftirlits. Snjalltækni fyrir sjálfbæra veiði TA10 Baujusendir – endingargóð, kuldaþolin rafhlaða. Auðvelt er að hlaða hana með BC10 tvöföldu hleðslutæki . Hleðslan er þráðlaus sem kemur í veg fyrir leka og tæringu á hleðslusnertum. RA10 Móttakari – tengist beint við kortakerfi skipsins og sýnir nákvæma staðsetningu veiðarfæra. Samvinna á sjó – TronTracker móttakarar geta einnig lesið merki frá öðrum sendum á sama tíðnisviði, sem dregur úr árekstrum og styður við sjálfbæra nýtingu auðlinda. Helstu kostir Nákvæm staðsetning – auðveld og skjót endurheimt veiðarfæra Samþykktur valkostur í stað AIS bauja Dregur úr tapi á veiðarfærum Sparar eldsneyti og minnkar kolefnislosun Stuðlar að sjálfbærum fiskveiðum Samhæft helstu kortaplotter-kerfum Tilbúin pakka­lausn TronTracker pakki 1 × RA10 móttakari 2 × TA10 sendar með festingum 1 × BC10 tvöfalt hleðslutæki Stakar einingar (seldar sér) RA10 móttakari TA10 sendar með festingu BC10 tvöfalt hleðslutæki Festingapakki (5 stk.) Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu framleiðenda – hér

Tengdar vörur

Weatherdock Easy2 MOB
Weatherdock· AIS Baujur

Weatherdock Easy2 MOB

Mjög nettur og handhægur AIS/ DSC neyðarsendir sem hægt er að setja í björgunarvesti eða í vasa á flotgalla.…

Weatherdock A 140 AIS bauja
Weatherdock· AIS Baujur

Weatherdock A 140 AIS bauja

Veiðarfærabauja sem byggir á AIS tækninni og sendir staðsetningu veiðarfæra inn á siglingatölvu notanda í…