Fara í efni
+354 512 8500
Kaijo Sonic SCS-22 Sonar

Kaijo Sonic SCS-22 Sonar

Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?

Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.

Lýsing

Kaijo Sonic SCS-22 er nýjasta gerð lágtíðnisónartækja frá KAIJO. SCS-22 er með tölvustjórneiningu sem hefur stafræna merkjavinnslu og mikinn hraða í gagnavinnslu. Þetta skilar meiri næmni á fisk, minni truflunum, betri aðgreiningarhæfni og auknu langdrægi. Senditíðnin er mjög lág, 21 kHz sem skilar mjög miklu langdrægi. Hífibúnaðurinn og sónarkúlan á KAIJO Sonic SCS-22 eru gríðarlega sterkbyggð sem þýðir að líkur á kostnaðarsömum viðgerðum eru verulega minni og rekstrarkostnaður lægri. Mög þröngir geislar, aðeins 7 ° gefur mjög góða mynd og óvenju litlir hliðargeislar tryggja einnig að sónarinn heldur eiginleikum sínum vel á grunnu vatni og skilar góðri aðgreiningu á litlum lóðningum. 20 sinnum hraðvirkari veltuleiðrétting og háþróuð truflanadeyfing fjarlægir truflanir og skilar hreinum og skörpum lóðningum. Einkaleyfisvernduð senditækni, RDT skilar lengri og kröftugri sendipúlsi og skilar 20% meira langdrægi. Stillanleg tíðni 2 sjálfstæðar sónarmyndir, með mismunandi stillingum á skala, næmni, truflanadeyfingum og fleiri þáttum. 2 sjálfstæðar lóðréttar sneiðmyndir Ferlun á allt að 3 fisktorfum samtímis, (hraði og stefna) Hægt er að vista allt að 10 mismunandi notendastillingar fyrir mismunandi aðstæður og fisktegundir. Ný og þróuð truflandeyfingartækni minnkar truflanir frá eigin skipi og öðrum skipum sem skilar hreinni mynd og betri aðgreiningu á fiski. Hægt að tengja þráðlausa rottu til þægindaauka við stjórnun sónars. Mjög öflug sónarkúla með 768 augum, í húsi úr ryðfríu stáli sem tryggir lágmarks líkur á tjóni á kúlunni. Mjög sterkbyggður hífibúnaður með stuðningshring á röri sem styður við kúluna alla leið niður brunninn. Þetta minnkar viðhaldskostnað og eykur líftíma hífibúnaðar og kúlu. Eins og í öllum Kaijo tækjum er stjórntölvan í stál boxi og engir hreyfanlegir hlutir nema kælivifta í iðnaðargæðum Einfalt að taka upp og skoða sónarmyndir. Sjá bækling um Kaijo Sonic SCS-22 Sonar- hér

Tengdar vörur

Kaijo Sonic SCS-88 Sonar
Sonic Kaijo Denki· Sónarar

Kaijo Sonic SCS-88 Sonar

Kaijo Sonic SCS-88 er nýjasta gerð lágtíðnisónartækja frá KAIJO. SCS-88 er með tölvustjórneiningu sem hefur…

Kaijo Sonic SCS-18H Sonar
Sonic Kaijo Denki· Sónarar

Kaijo Sonic SCS-18H Sonar

SCS-18H hentar við allar gerðir fiskveiða, en er sérstaklega viðurkenndur til makrílveiða þar sem tíðnin er…

Wesmar HD825 sónartæki
WESMAR· Sónarar

Wesmar HD825 sónartæki

(function ( $ ) { "use strict"; $(function () { var masterslider_fd1b = new MasterSlider(); // slider…