
MLD stýranlegir toghlerar
Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?
Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.
Skjöl og bæklingar
Lýsing
MLD toghlerarnir eru byltingarkennd nýjung í flottrollsveiðum vegna stillingarmöguleika þeirra og hæfni til að aðlagast mismunandi veiðarfærum og aðstæðum. Hlerarnir koma í fjórum meginútfærslum. Fastir óstillanlegir hlerar sem hafa þó sömu eiginleika og stillanlegu hlerarnir þegar kemur að stöðugleika og hve þeir eru léttir í drætti. Hlerar sem hafa stillanlega flapsa sem hægt er að stilla til að breyta virkri stærð hlerans. Þetta er gert á mekanískan hátt og mælt með að gera í landi til að minnka slysahættu. Hlerar sem hafa stillanlega flapsa sem breyttt er á einfaldan hátt með vökvatjakk og vökvadælu án þess að taka hlerana inn á dekk. Þetta gefur möguleika á að aðhæfa hlerana aðstæðum á einfaldan hátt án þess að stefna mönnum á hættu með að taka hlerana inn á dekk í slæmum aðstæðum. Fullkomið trollstjórnunarkerfi þar sem hægt er að fjarstýra hlerunum frá skipi meðan togað er. Þetta gerir kleift að bregðast við breytingum svo sem straums, þyngra trolls þegar fiskur kemur í poka og hægt að lyfta eða sökkva trolli mun hraðar en með hefðbundnum búnaði MLD hlerarnir hafa verið til reynslu í Færeyjum undanfarin ár og útgerðir þeirra skipa sem reynt hafa þá hafa almennt keypt hlerana í loka reynslutímans. Við erum með hlerana til prófunar um borð í íslensku skipi og lofa þær góðu. MLD vörur og eiginleikar MLD fastir hlerar MLD stillanlegir hlerar MLD vökvastillanlegir hlerar MLD trollstýrikerfi Hönnun hlera Léttir í drætti Já Já Já Já Auðvelt að kasta og hífa Já Já Já Já MLD flapsakerfi Nei Já Já Já Þarf að breyta festipunktum Já Já Nei Nei Trollstjórnun Stillanleg stærð hlera Nei Já, handvirkt, mekanískt Já, sjálfvirkt Stillanleg stærð um borð Nei Ekki mælt með Já Stýranlegir Nei Nei Já Uppfæranlegir í næsta módel fyrir ofan Nei Já Já Nei, er toppmódelið Sjálfvirkni Sjálfvirkt dýpi trolls Nei Nei Nei Já Sjálfvirk fjarlægð trolls frá botni Nei Nei Nei Já Sjálfvirkt hlerabil Nei Nei Nei Já MLD hlerarnir, enskur bæklingur Köstun MLD hleranna Hífing MLD hleranna
