
Actisense NDC-4 NMEA multiplexer/ Autoswitch
Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?
Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.
Lýsing
Tekur saman merki frá mörgum NMEA tækjum og skilar inn á 1 útgang Þetta tæki getur unnið á tvo vegu. Annarsvegar sem merkjablandari eða Multiplexer. Þá tekur hann merki frá allt að 5 tækjum og skilar þeim í einum merkjastreng út á útganginn. Þann streng er síðan hægt að taka inn á 1 serial port eða USB port á tölvu. Inngangarnir geta verið með mismunandi upplýsingu og með mismunandi Baud rate frá 4800 – 57.600 baud. Útgangurinn getur síðan haft baud rate frá 4800-115.200 baud Inn og útgangar eru fullkomlega einangraðir frá hver öðrum. Hinsvegar getur það unnið sem sjálfvirkur valrofi á milli tækja. Það væri td hægt að tengja 5 GPS tæki innn á það og síðan útganginn inn á plotter. Þá myndi plotterin nota það GPS tæki sem tengt er inn á inngang númer 1 meðan það vinnur eðlilega. Ef ekki berst merki frá því eða það verður ógilt , þá skiptir Autoswitchinn sjálfvirkt á næst inn gang og síðan koll af kolli. Nánari upplýsingar um Actisense NDC-4 má finna á vefsíðu framleiðenda – hér
Tengdar vörur

Actisense A2K-TER U
NMEA 2000 universal endaviðnám, bæði kall og kerling með Status LED fyrir NMEA 2000 netið. Nánari upplýsingar…

USB í Serial breytir
Breytir serial tengi yfir á USB form til notkunar í nýrri tölvum sem eru án serial tengja Serial breytir til…

Actisense W2K-1
W2K-1 Tekur gögn frá NMEA 2000 neti og sendir þráðlaust út á WiFi formi inn á tölvur, síma og önnur tæki sem…

Actisense USG-2
Einangraður USB í serial breytir til að tengja NMEA 0183 tæki inn á tölvu á öruggan hátt án þess að eiga á…
