
Raymarine Axiom 2 Pro fjölnotaplotter
Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?
Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.
Lýsing
Mjög öflugt fjölnotatæki, fáanlegt með innbyggðum dýptarmæli sem sýnir þrívíddarmynd af botni auk fisklóðninga. Einnig er innbyggður í það mjög öflugur 1 Kw. dýptarmælir fyrir veiðar á djúpu vatni. Ef þörf er á enn öflugri dýptarmæli er hægt að tengja við tækið 2 kw. dýptarmæliseiningu sem ræður við allar fiskveiðar minni og meðalstórra báta. Axiom 2 Pro tækið er með hraðvirkum sex kjarna örgjörva, bæði snertiskjá og takkaborði (HybridTouch) og mjög einföldu og aðgengilegu stýrikerfi með íslensku notendaviðmóti. Það getur unnið sem þungamiðja í fullkomnu stjórnkerfi báta og hægt að tengja við það fjöldan allan af tækjum sem stjórnað er miðlægt frá því, svo sem radar, sjálfstýringu, AIS tæki, myndavélar, vélbúnað bátsins og hljóðkerfi hans svo eitthvað sé nefnt. Axiom 2 Pro tækið hefur bæði WiFi og bluetooth tengingu og getur því tengst öllum nýrri snjalltækjum sem býður upp á nær endalausa möguleika. Hægt er að keyra fjölda smáforrita (APP) á Axiom línunni svo sem Spotify, Netflix ofl. sem eykur enn á notagildi þessara tækja. Vinnuspenna Axiom 2 Pro er 12 og 24 volt og það tengist öðrum tækjum í bátnum með NMEA2000 netkerfistengingu. Axiom 2 Pro tækið er fáanlegt í þremur stærðum, 9”, 12” og 16” skjástærð. Tækið er bæði hægt að festa ofan á borð eða fella inn í mælaborð. Sjá nánari upplýsingar um tækið á vefsíðu framleiðanda hér: Sjá nánari upplýsingar um Raymarine Axiom Pro fjölnotaplotter á vefsíðu framleiðenda – hér
Tengdar vörur

Koden CVS-1410B Breiðbands dýptarmælir
Öflugur 2 tíðna 2 Kw. dýptarmælir með 10,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur breiðbandsmælir fyrir…

Koden CVS-128B Breiðbands dýptarmælir
Nettur 2 tíðna 2 Kw. dýptarmælir með 8,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur breiðbandsmælir sem auðvelt…

Koden CVS-1410/CVS-1410HS Dýptarmælir
2 tíðna 1 Kw. dýptarmælir með 10,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur mælir sem fáanlegur er í tveim…

Koden CVS-128 Dýptarmælir
Nettur 2 tíðna 600 w/ 1 Kw. dýptarmælir með 8,4″ litaskjá fyrir litla báta. Mjög öflugur mælir sem auðvelt er…
