
Flir AX8 vélarrúms eftirlitsmyndavél
Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?
Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.
Lýsing
Alger nýjung í vélarrúmseftirliti sem getur mælt hita á stökum punktum og svæðum. Lætur vita ef hiti fer upp eða niður fyrir ákveðin stillanleg mörk. Byltingarkennd nýjung í vélarrúmseftirliti. Auk þess að vinna sem hefðbundin myndavél sem sýnir skýra mynd af því sem er í gangi í vélarrúminu vinnur vélin einnig sem hitamyndavél. Hægt er að stilla inn 6 mælipunkta í myndinni og láta myndavélina mæla með mikilli nákvæmni hitann í hverjum fyrir sig eða hitamun milli tveggja punkta. Ef hitinn fer yfir eða undir valin gildi gefur myndavélin aðvörun þannig að hægt er að grípa til aðgerða áður en brunar eða önnur slys verða.
Tengdar vörur

Flir M300 myndavéla línan
Flir M300 myndavélalínan setur ný viðmið í myndavélatækni fyrir skip og eykur öryggi í siglingum svo um…

Flir M232 hitamyndavél
Flir M232 hitamyndavélin er ein minnsta og ódýrasta hitamyndavélin frá Flir. Hún er mótorstýrð og hægt að…
