Fara í efni
+354 512 8500
Flir M300 myndavéla línan
Flir· Hitamyndavélar

Flir M300 myndavéla línan

Viltu fá ráðgjöf um þessa vöru?

Sendu okkur fyrirspurn og við förum yfir hvort þessi lausn henti þínu skipi, báti eða kerfi.

Lýsing

Flir M300 myndavélalínan setur ný viðmið í myndavélatækni fyrir skip og eykur öryggi í siglingum svo um munar. Með því að bæta veltuleiðréttingu við framúrskarandi myndgæði, bæði á hitamynd og sýnilegri mynd tekur hún afgerandi forystu á þessu sviði. M300 myndavélarnar eru til sem hefðbundnar ofurljósnæmar vélar með gríðarmiklum aðdrætti, hágæða hitamyndavélar og tvöfaldar vélar sem sameina eiginleika beggja myndavélagerðanna. Hún er mótorstýrð og hægt að snúa henni í 360° og halla henni í hvaða gráðu sem er. Upplausn hitamyndavélarinnar er allt að 640*480 punktar sem gefur skýra mynd af bátum, siglingamerkjum og hindrunum á siglingaleið hvort sem er í svarta myrkri eða á móti blindandi sól. Upplausn hefðbundnu myndavélarinnar er 1080p eða full HD, með 30X aðdrætti og ljósnæmi upp á 0,1 lux Sé hún tengd inn á Raymarine fjölnotaplotter, nýtir hann hina einstöku Clear cruise tækni til að greina sjálfvirkt hluti í umhverfinu og sýna á skýran hátt hvar þeir eru. Einnig er hægt að tengja hana við og stýra frá helstu siglingaforritum svo sem Maxsea Timezero. Gerð M300C M332 M364 M364C M364C LR Hitamyndarnemi Ekki til staðar Einungis sýnilegt ljós Boson 320 Boson 640 Boson 640 Boson 640 Hefðbundin myndavél Ljósnæm háupplausn 30x stækkun Ekki til staðar Ekki til staðar Ljósnæm háupplausn 30x stækkun Ljósnæm háupplausn 30x stækkun Sjónsvið Breytilegt 24° 24° 24° 18° FLIR hitamynd í lit (CTV) Nei Nei Nei Já Já FLIR MSX® Nei Nei Nei Já Já Raymarine Axiom ClearCruise™ Augmented Reality Já Já Já Já Já Sjá nánari upplýsingar um Flir M300 myndavéla línan á vefsíðu framleiðenda – hér

Tengdar vörur

Flir M232 hitamyndavél
Flir· Hitamyndavélar

Flir M232 hitamyndavél

Flir M232 hitamyndavélin er ein minnsta og ódýrasta hitamyndavélin frá Flir. Hún er mótorstýrð og hægt að…

Flir AX8 vélarrúms eftirlitsmyndavél
Flir· Hitamyndavélar

Flir AX8 vélarrúms eftirlitsmyndavél

Alger nýjung í vélarrúmseftirliti sem getur mælt hita á stökum punktum og svæðum. Lætur vita ef hiti fer upp…